Nordtorg
Í smíðum · fyrstu miðlar í prófun veturinn 2026–2027

Auglýsingar án milliliða

Nordtorg tengir auglýsendur beint við vefmiðla, dagblöð og tímarit. Fyrirtæki bóka sjálf með nokkrum hökum, miðillinn samþykkir og heldur langstærstum hluta verðsins, og sölumenn geta selt á öllum miðlum í kerfinu.

40%tekna íslenskra vefmiðla fer til söluaðila auglýsinga
51%auglýsingafjár á Íslandi fór til erlendra risa árið 2024
0vafrakökur: birting eftir efni og landshluta, ekki eftir fólki

Eitt kerfi, þrjú hlutverk

Auglýsendur, miðlar og sölumenn vinna í sama kerfinu. Bókun, samþykki, greiðslur og skýrslur eru á einum stað.

Auglýsendur

Bókaðu sjálf

Eins einfalt og Google Ads, en á miðlum sem lesendur treysta.

  • Vefborðar, umfjallanir og auglýsingar í dagblöðum og tímaritum
  • Markhópur með hökum: landshluti, efnisflokkur, sími eða tölva, tími dags
  • Gerðu tilboð í pláss í blaði eða tímariti
  • Sjáðu verð og áætlaða dekkun áður en þú greiðir
  • Auglýsingin búin til úr vefnum þínum ef þú átt hana ekki tilbúna
  • Skýrsla um birtingar og smelli

Skrá mig sem auglýsanda

Vefmiðlar, dagblöð, tímarit

Seldu plássin þín

Þú setur verðið, samþykkir allt sem birtist og heldur 80–92% teknanna.

  • Vefur: ein skrifta á vefinn og merkimiði fyrir hvert pláss
  • Þú ræður forgangsröðinni: hæsta verð, samningar fyrst, eða Google AdSense þegar það greiðir best
  • Dagblöð og tímarit: tölublöð, stærðir og skilafrestir; samþykktu eða hafnaðu tilboðum
  • Kostaðar umfjallanir sem sér vara, alltaf merktar „Kynning“
  • Óseld pláss fara áfram til núverandi söluaðila

Skrá miðilinn minn

Sölumenn

Seldu á öllum miðlum

Fyrir þá sem kunna að selja auglýsingar en vilja ekki vera bundnir einum miðli.

  • Selur pláss allra miðla í kerfinu
  • Færð 15% af hverri sölu sem þú kemur með
  • Kerfið sér um bókun, samþykki, reikninga og skýrslur
  • Engin binding og engin föst laun: þú ræður tíma þínum

Skrá mig sem sölumann

Svona virkar það

Frá bókun að birtingu án tölvupósta fram og til baka.

Auglýsandi bókar

Velur miðla, markhóp, tímabil og upphæð, eða gerir tilboð í pláss í blaði.

Miðillinn samþykkir

Sjálfvirk yfirferð stöðvar bannaða flokka; miðillinn samþykkir eða hafnar.

Birt og mælt

Auglýsingin birtist og báðir sjá birtingar og smelli jafnóðum.

Engar vafrakökur

Auglýsingar eru birtar eftir efni síðunnar og landshluta lesandans, ekki eftir því hver hann er. Það þarf engan vafrakökuborða vegna Nordtorg.

✓Ekkert geymt á tæki lesandans
✓Landshluti lesinn úr beiðninni og IP-tölunni hent
✓Hraðar auglýsingar sem hægja ekki á vefnum
✓Áfengi, nikótín og fjárhættuspil án leyfis stöðvað sjálfkrafa

Eðlilegt verð

Brot af því sem milliliðir taka í dag. Engin föst gjöld.

HverGreiðirHvenær
Auglýsendur0%Engin þóknun ofan á verð miðilsins
Miðlar8%Þegar auglýsandi bókar sjálfur
Miðlar20%Þegar sölumaður eða Nordtorg finnur auglýsandann (þar af 15% til sölumanns)
Sölumenn+15%Þóknun til sölumanns af hverri sölu

Til samanburðar taka söluaðilar á Íslandi um 40%. Verðin geta breyst áður en kerfið opnar.

Skráðu þig

Við höfum samband þegar kerfið opnar fyrir þinn hóp. Fyrstu miðlarnir fá betri kjör.

Ég er